Myndin er héðan.
Sniðugar hugmyndir, hönnun, innblástur, föndur og bara allskonar fyrir börn
Sýnir færslur með efnisorðinu Barnaherbergi. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Barnaherbergi. Sýna allar færslur
miðvikudagur, 2. nóvember 2011
Ekta fyrir bíladellubörnin!
Myndin er héðan.
Landkönnuðir
Þetta herbergi er flott fyrir lítinn landkönnuð. Mér finnst þessi sófaróla alveg æði! Herbergið fyrir neðan er svona ævintýraherbergi. Það kemur skemmtilega út að hengja flugvélarnar í loftið. Sniðugt líka að hafa þessar dyr fyrir rúminu og án efa hægt að fela sig þar :) Efri myndin er héðan og neðri héðan.sunnudagur, 18. september 2011
Grafískt
Hér er nóg að skoða fyrir litla krílið! Allskyns munstur og sterkir litir. Þetta herbergi gæti bara verið alveg eins fram á fullorðinsár, það þarf bara að skipta út rúminu. Mjög skemmtileg hugmynd finnst mér. Ef maður fær ekki fljótt leið á hlutunum gæti bara verið sniðugt að sleppa öllu barna dúlleríinu og velja frekar tímalaus listaverk á veggina og skemmtilegar litasamsetningar.
Myndin er af the Boo and the Boy.
Myndin er af the Boo and the Boy.
þriðjudagur, 6. september 2011
Skilrúm
Þetta er sniðug hugmynd ef það þarf að skipta herbergi upp t.d. ef börn deila stóru herbergi. Það fer bæði ljós og loft þarna í gegn. Svo er alltaf hægt að mála þetta í öllum regnbogans litum :)
Myndin er héðan.
Myndin er héðan.
mánudagur, 5. september 2011
Náttúrulegt?
Mjög mínimalískt og náttúrulegir tónar í litavali. Mér finnst þetta koma einstaklega vel út en hugsa að þegar barnið eldist þá fari nú að verða erfiðara að halda plastdótinu og björtum litum í burtu. En þetta umhverfi er án efa róandi fyrir lítið kríli og mjög fallegt :)
Takið eftir litlu skýjahillunum á gólfinu. Hélt fyrst að þetta væru dúkkurúm en svo virðist sem þetta séu bókahillur. Sniðugt þar sem gólfpláss er ekki af skornum skammti. Svo er barnarúmið voða sniðugt líka!
Myndin er héðan.
Takið eftir litlu skýjahillunum á gólfinu. Hélt fyrst að þetta væru dúkkurúm en svo virðist sem þetta séu bókahillur. Sniðugt þar sem gólfpláss er ekki af skornum skammti. Svo er barnarúmið voða sniðugt líka!
Myndin er héðan.
Svo kósý
Mér finnst þetta voðalega fallegt herbergi. Litapallettan er skemmtileg og þrátt fyrir ólíka liti passar þetta allt saman. Það er líka passlega mikið dót sjáanlegt ;)
Myndin er af Milk Magazine og fannst á síðunni The Boo and the Boy.
Myndin er af Milk Magazine og fannst á síðunni The Boo and the Boy.
þriðjudagur, 28. júní 2011
Fínt í herbergið
Það eru nokkrir hlutir hér sem vel er hægt að græja sjálfur. Perlu ,,gardínuna" er hægt að gera sjálfur. Hægt er að kaupa ótrúlega fallegar perlur t.d. í Tiger og Litir og föndur og svo bara þræða upp á band. Þessi gardína er líka með dúskum og það er vel hægt að festa þá á líka. Það þarf ekkert að þræða alveg allt bandið, hægt er að binda hnúta annað slagið til að halda þeim á sínum stað. Svo er t.d. hægt að hengja lengjurnar í króka eða bora göt í spýtu og þræða böndin í gegn og festa síðan spýtuna upp í loftið.
Svo er það púðinn á gólfinu, það er t.d. hægt að kaupa prjónaefni ef prjóna og hekl kunnáttan er í lágmarki. Þetta er frekar auðveldur saumaskapur og meira segja hægt að sauma saman með nál og tvinna. Svo er bara að skreyta með einhverjum fallegum dúllum og setja troð inní.
Myndin er héðan.
Svo er það púðinn á gólfinu, það er t.d. hægt að kaupa prjónaefni ef prjóna og hekl kunnáttan er í lágmarki. Þetta er frekar auðveldur saumaskapur og meira segja hægt að sauma saman með nál og tvinna. Svo er bara að skreyta með einhverjum fallegum dúllum og setja troð inní.
Myndin er héðan.
mánudagur, 30. maí 2011
Fínt herbergi

Það er allt svo sætt í þessu herbergi. Sniðugt að hengja handbrúður upp á band sem skraut. Það er líka búið að setja veggfóður eða pappír inn í litlu hilluna á veggnum. Litlu skúffurnar í glugganum eru líklega veggfóðraðar líka eða kannski notaður þunnur pappír og veggfóðurslím (þá er sett veggfóðurslím undir, svo pappírinn og svo aftur veggfóðurslím yfir, að mig minnir ( líka gert með servíettum)). Veggfóðrið á veggnum er líka alveg yndislegt og passar alveg svakalega vel þarna inn. Held að það sé skemmtilegt að skoða og leika sér þarna.
Myndirnar eru héðan.
Veggskraut - föndur
Endalaust hægt að skrifa um veggskraut! En svona fiðrildi er alveg hægt að gera sjálfur t.d. úr pappír eða filt efni. Auðveldasta leiðin til að gera svona er líklega bara úr kartoni, teikna þau, klippa út, brjóta síðan saman í miðjunni og skella svo á vegginn með kennaratyggjói. Börnin gætu skreytt þau. Svo er líka hægt að nota pípuhreinsara í miðjuna og í fálmarana. Bara að láta hugmyndaflugið ráða, endalausir möguleikar í þessu. Ég hef líka séð svona myndir í ramma þar sem notuð er svipuð aðferð, hér er t.d. ein mynd.
Myndin er af Marie Claire Maison.
Myndin er af Marie Claire Maison.
Fuglahús á veggina?
Þetta er nokkuð skemmtilegt, tréið líklega bara málað á vegginn. Fyrir þá sem finnst þetta kannski fullmikið er t.d. hægt að gera útlínur af einföldu tréi og fá svo svona ofsa sætar smáhlutahillur frá Ferm Living til að hengja á greinarnar (neðri myndin) :) Efri myndin er af Design Sponge.
Stílhreint herbergi f/4
Þetta er nú frekar lekkert finnst mér. Er farin að trúa að ég þurfi kannski ekki svo stóra íbúð/hús til að búa í ;) Reyndar þyrfti þá líklega annað herbergi fyrir allt það sem fylgir börnunum :) Þetta er samt fín hugmynd ef maður á mörg börn en fá herbergi!Myndin er héðan.
sunnudagur, 15. maí 2011
Rómó gamaldags
Þessi tvö eru voða sæt. Sniðugt að nota trjágrein og efni og búa til himnasæng á rúmið, kemur skemmtilega út í þessu herbergi.Myndirnar eru af Marie Claire Maison.
Hellú, ef þið viljið sjá færslurnar á þessu bloggi (allskonar fyrir apaskott) á facebook þegar þær koma inn like-ið þá þessa síðu.
Myndin er af Baby Space.
Myndin er af Baby Space.
Indjánaþema
Þetta er súper skemmtilegt. Alltaf gaman þegar fólk fer alla leið með þemað :) Ef þið viljið gera svona gætuð þið gert kaktusana þarna á bak við t.d. með því að nota þykkan pappa eða nota svona hilluplast eins og ég gerði þegar ég bjó til vegglímmiðana.
Það er líka hægt að búa til svona tjald sjálfur, hér og hér eru leiðbeiningar, hægt að finna ýmsar fleiri leiðbeiningar á netinu (googlið t.d. kids teepee DIY). Ég ætla að prófa að gera svona tjald í sumar :) Svo er meira að segja hægt að gera indjánagrímuna með pappa og gerviloðefni (klippt í lengjur og saumað saman). Bara nota ímyndunaraflið :)
Myndin er af héðan.
Það er líka hægt að búa til svona tjald sjálfur, hér og hér eru leiðbeiningar, hægt að finna ýmsar fleiri leiðbeiningar á netinu (googlið t.d. kids teepee DIY). Ég ætla að prófa að gera svona tjald í sumar :) Svo er meira að segja hægt að gera indjánagrímuna með pappa og gerviloðefni (klippt í lengjur og saumað saman). Bara nota ímyndunaraflið :)
Myndin er af héðan.
Rúm í tjaldi
Jæja, hvernig væri bara að kaupa soldið stórt tjald og setja rúmið inní. Gæti slegið í gegn. Gera svona útileguþema í herberginu :) Hafa vasaljós út um allt og eitthvað svona skemmtilegt. Það væri a.m.k. þess virði að gera það í einn dag allavega, held að það yrði mjög eftirminnilegt. Án efa gaman að sjá svipinn á barninu þegar það fer inn í herbergið :)
Myndin er héðan.
Myndin er héðan.
Ólíkir litir
Ég er mjög hrifin af litunum í þessu herbergi, ólíkir litir en tóna vel saman. Þeir Viddi og Bósi eru innblásturinn hér. Bósi ljósár stendur á náttborðinu, það er geimfar (púði) í rúminu og svo er bláa teppið á rúminu með myndum af þeim félögum. Viddi er í heiðurssætinu (á rúminu) og svo eru þarna tveir kúrekahattar, reipi, kúrekastígvél og ýmislegt annað sem tengist þeim Bósa og Vidda. Mér finnst þetta vel heppnað herbergi. Það hefur greinilega verið hugsað út í allt þarna.Myndin er héðan.
Kærleiksbangsaæði!
Ókei, svo að það sé á hreinu myndi Gunna vera sjúk í þetta herbergi. Ef hún ætti herbergið væru bangsarnir allir í rúminu hennar! Hún fer sko að sofa með svona 20 bangsa á kvöldin :) Mér finnst þetta aðeins of mikið, væri til í að hafa nokkra en ekki alveg veggfóðra með þeim. Samt er þetta sniðug hugmynd fyrir þá sem eru að safna böngsum, pezköllum, lyklakippum o.s.frv. og vita ekkert hvað þeir eiga að gera við safnið. Gæti komið flott út. Prófið :)
Myndin er af héðan.
Myndin er af héðan.
þriðjudagur, 10. maí 2011
Gult
Mér finnst gulur vera yndislegur litur í barnaherbergi, eitthvað svo bjartur og fallegur. Þetta gula veggfóður er frá Ferm Living og virðist vera alveg ótrúlega vinsælt. Mér finnst að það sem gerir þetta herbergi dálítið töff er Pikachu á veggnum :)
Myndin er héðan.
Myndin er héðan.
sunnudagur, 8. maí 2011
Plássið vel nýtt!
Þetta finnst mér alveg frábært. Rúm, skápur og leikhús allt í einu :) Ég fann þessa snilld á Marie Claire Maison.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)



















