Ég elska skreytingar fyrir veislur! Mér finnst þetta voða fallegt, soldið föndur að búa þetta til, en alveg þess virði. Þetta gerir einfalda veislu ævintýralega :) Ég á sko pottþétt eftir að prófa þetta við tækifæri! Það eina sem þarf eru pappírsafgangar, band og lím :)
Myndin er af Apartment Therapy.
Sniðugar hugmyndir, hönnun, innblástur, föndur og bara allskonar fyrir börn
Sýnir færslur með efnisorðinu Veislur. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Veislur. Sýna allar færslur
mánudagur, 30. maí 2011
föstudagur, 22. apríl 2011
Pom Poms
Að búa til pom poms er mjög einfalt og það getur algjörlega breytt barnaherberginu (og fleiri herbergjum) að hengja nokkra upp í loftið eins og sýnt er á myndunum. Svo er líka gaman að nota þá í veislur, sem skraut á pakka og bara allskonar. Ég hugsa að það sé best að nota silkipappír og hann fæst í ýmsum bókabúðum. Leiðbeiningar til þess að búa til pom poms eru hér. Myndirnar : Efri myndin er af Lori Danelle, neðri myndin vinstra megin er af Bloesem Kids, myndin hægra megin er af Baby Space.
miðvikudagur, 13. apríl 2011
Afmæliskakan
Jæja, þetta er afrakstur þrotlausrar vinnu í eldhúsinu... djók. Nei þetta er úr afmæli Gunnu og er hugmynd fyrir þá sem nenna ekki eða geta ekki gert flóknar afmælistertur. Það sem maður gerir er að finna nokkrar fínar myndir, prenta og klippa þær út, líma þær svo á blað með grillpinna á milli. Voila, ævintýraleg prinsessukaka!
Svo geta nú börnin tekið þátt í þessu þó mér finnist nú alltaf skemmtilegra að koma Gunnu á óvart með kökunni :)
Svo geta nú börnin tekið þátt í þessu þó mér finnist nú alltaf skemmtilegra að koma Gunnu á óvart með kökunni :)
miðvikudagur, 23. mars 2011
Mottumars
Já, fyrir þá sem ekki getað safnað skeggi og svo auðvitað konur og börn er hægt að framkvæma þetta. Mér sýnist þetta vera búið til úr filt efni og svo bara saumað saman og skellt á prik. Ég væri hins vegar hlynnt því að þið mynduð prófa að gera svona konfekt sem borið væri fram á svona pinnum :) Gæti verið sniðugt í grímuballsafmæli ;)
Myndina fann ég hér.
Myndina fann ég hér.
Afmæli!
Nú nálgast óðfluga afmæli Gunnu svo ég er búin að vera skoða ýmsar hugmyndir fyrir afmælisveislur. Hér eru tvær skemmtilegar!
Mér finnst sirkus veislan alveg frábær! Það eru fullt af fleiri myndum frá henni hér og þar er meira að segja hægt að prenta út ýmislegt sem tengist sirkus veislunni, ég er með þarna eina mynd af því sem hægt er að prenta út en það er miklu meira :) Þannig að maður þarf nú ekkert að teikna eða leita af myndum á netinu ;)
Risaeðluveislan er af sömu síðu en síðan heitir One Charming Party og þar eru fullt af hugmyndum! Ég vona innilega að annað barnanna eigi eftir að vilja risaeðlupartý einn daginn :) Held að það sé sko hægt að gera allskonar skemmtilegt með risaeðluþema! Vá hvað mig langar annars í þessa súkkulaðiköku!!!

Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)