Hér eru tveir vegglímmiðar sem mér finnst mjög sætir. Hefði án efa spáð í þessum ef ég væri ekki búin að gera vegglímmiða sjálf, sjá hér. Hrikalega krúttlegir. Efri er frá RoomMates og neðri frá ForWalls.
Sniðugar hugmyndir, hönnun, innblástur, föndur og bara allskonar fyrir börn
Sýnir færslur með efnisorðinu Vegglímmiðar. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Vegglímmiðar. Sýna allar færslur
föstudagur, 29. apríl 2011
fimmtudagur, 24. mars 2011
Ferm Living...
...búa til ÆÐISLEG veggfóður, púða, vegglímmiða o.fl. Þetta er danskt fyrirtæki og það sendir til Íslands!! Tjekkið á síðunni!!
Smá update: Epal selur eitthvað af vörunum þeirra :)
mánudagur, 21. mars 2011
Vegglímmiðar frh.
Jæja þá er búið að gera vegglímmiða á vegginn hennar Gunnu. Hann er nú bara eins og hinn þ.e. tré en langaði bara að sýna hann vegna þess að ég gerði öðruvísi fígúru á það. Gunna fékk íkorna og íkornabarn og líka flugdreka. Mér finnst þetta lífga mjög upp á herbergið og ég verð ægilega glöð þegar ég horfi á veggina :) Hér til hliðar eru myndir af báðum veggjunum. Smellið á myndina ef þið viljið sjá þetta stærra :)
þriðjudagur, 15. mars 2011
Að búa til vegglímmiða
Ég gerði þetta tré með því að nota hilluplast (fæst í Teppabúðinni á Grensásvegi) og það er auðvelt að líma það á og auðvelt að taka það af!! Það eru til einhverjir litir af þessu plasti sem og viðaráferðir og krómáferð. Ég bjó til ugluna úr allskonar pappírsafgöngum sem ég átti og ákvað að gera svona fánalengju til þess að skreyta tréið ennþá meira (hún er líka úr pappír). Þetta allt tók alls ekki langan tíma, held ég hafi verið svona 20 mínútur að teikna tréið á plastið, klippa það út og líma það á vegginn :)Myndirnar sýna vegginn fyrir og eftir og svo sýna neðri myndirnar svona soldið hvernig ég gerði þetta. Ef þið skellið ykkur í svona límmiðagerð passið ykkur þá á því að spegla það sem þið ætlið að gera því maður teiknar jú á bakhliðina :)
mánudagur, 14. mars 2011
Límmiðar á vegg
Þessir skemmtilegu vegglímmiðar eru íslensk hönnun. Þeir koma frá fyrirtæki sem heitir Studio Akkeri og það er allskonar sniðugt að finna þar. Þau halda líka út bloggi og þar er að finna fullt af fallegum myndum með sniðugum hugmyndum og innblæstri.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)






