Sniðugar hugmyndir, hönnun, innblástur, föndur og bara allskonar fyrir börn
Sýnir færslur með efnisorðinu Stafróf. Sýna allar færslur
Sýnir færslur með efnisorðinu Stafróf. Sýna allar færslur
miðvikudagur, 4. maí 2011
Segull
fimmtudagur, 31. mars 2011
Íslenska stafrófið...
...plús C, Q, W og Z. Fannst að þeir stafir yrðu að vera með því maður verður jú að læra þá líka. En þessar stafrófs veggmyndir byrjaði ég á að gera í word, þ.e. skrifaði alla stafina, valdi það letur sem ég vildi hafa og litaði þá. Vistaði svo wordskjalið sem pdf og færði mig yfir í photoshop og smellti hinu inn þar. Þetta er voða auðvelt sko :) Það er náttúrulega samt alveg hægt að gera þetta bara í word eða bara í photoshop. Ég stefni á að gera svona mynd með letri sem ég bý til við tækifæri og kannski fleiri myndum. Það er þó ýmislegt annað stafrófstengt sem er framundan í föndrinu svo fleiri veggmyndir verða að bíða betri tíma. Ég sýni myndir af hinu stafrófsföndrinu mínu einhverntíman á næstu vikum.
Smellið á myndina ef þið viljið sjá hana stærri :)
Smellið á myndina ef þið viljið sjá hana stærri :)
Stafrófið
Það er gott að byrja ritmálsörvunina snemma og þá er bara málið að skella upp mynd af stafrófinu. Veit reyndar ekki hvort þessar henti vel til þess þar sem stafrófið á þeim er svona frekar ólæsilegt fyrir lítil kríli en þau eru óneitanlega mjög falleg og gætu samt sem áður komið vel út á veggjum barnanna :) Þessar tvær myndir eru frá Tim Fishlock.Ég tók eftir að það vantar svolítið íslenskar stafrófsmyndir og því brá ég á það ráð að búa til eitt stykki. Sjáið umfjöllun og mynd í næsta bloggi :)
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)


